það er mikið um grófleika í tískunni núna sem ég er að fíla...nælur, keðjur og rifur. flott að poppa upp á svartan blazer jakka með því að setja nælur á axlirnar eins og á mynd tvö fyrir neðan.
ég er mikill rodarte aðdáandi en systurnar sem hanna fyrir merkið voru að gera línu fyrir target. hefur örugglega verið challenge fyrir þær af því þær hanna ekki beint mjög klæðileg mass-market föt. en mér finnst línan nokkuð töff og þær náðu alveg að koma rodarte andanum í ódýrari flíkurnar.
mér finnst svo gaman að tískuskissum. kannski af því að ég kann ekkert að teikna og vildi svo mikið getað tjáð mig með því að teikna!
þeir sem ég held mest upp á eru danny roberts og sandra suy. þau teikna bæði myndir eftir ljósmyndum eða nota andlit þekktra fyrirsæta til að skapa nýja mynd. alveg einstakir talentar hér á ferð.
íslenski fatahönnuðurinn hildur yeoman teiknar ótrúlega flottar myndir. mæli með því að kíkja á heimasíðuna hennar og skoða þær.
acne atacoma skórnir hafa verið að tröllríða öllu í bloggheiminum enda ógeðslega töff skór! hver tískubloggarinn á fætur öðrum hafa nælt sér í par, aðallega skandinavíupíurnar enda acne alsænskt.
fylltir hælar eru almennt mjög heitir í ökklaskónum. ég var í fyrstu ekki alveg sannfærð og ekki að fíla þá en þeir hafa unnið á og núna þegar það eru líka komnar fjölbreyttari tegundir þá hef ég alveg fallið fyrir trendinu.ég sá að það eru komnar svona týpur í kaupfélaginu og svo er sænska keðjan din sko með nokkrar útgáfur.